09.01.17 - 12:00
Magnús Már Einarsson
Ingvar Kale í ÍA (Staðfest)

Ingvar Þór Kale.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingvar Þór Kale.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA hefur staðfest í fréttatilkynningu að markvörðurinn Ingvar Þór Kale sé kominn til félagsins.
„Árni Snær Ólafsson aðalmarkmaður ÍA sleit krossbönd í byrjun nóvember og verður frá næstu mánuði og því þurfti félagið að finna markmann í hans stað. Mikil ánægja er hjá félaginu að ná samningum við hinn reynda Ingvar Þór og mun hann berjast um stöðuna við Pál Gísla Jónsson,\" segir í fréttatilkynningu frá ÍA.

Ingvar hefur verið án félags síðan hann yfirgaf herbúðir Vals í ágúst síðastliðnum. Hinn 33 ára gamli Ingvar hefur leikið með Val undanfarin tvö ár en hann varð bikarmeistari í bæði skiptin.
„ÍA er frábær klúbbur með mikla hefð og merka sögu. Ég hafði mikinn áhuga um leið og það var haft samband við mig og ég tel mig hafa mikið fram að færa til að hjálpa liðinu í baráttunni næsta sumar. Síðasta sumar gekk ekki jafnvel hjá mér eins og árin þar á undan og ég er orðinn hungraður í árangur aftur,\" sagði Ingvar eftir undirskriftina.
Ingvar varð Íslands og bikarmeistari með Breiðabliki þegar hann spilaði með liðinu frá 2009 til 2012. Þaðan fór hann aftur í uppeldisfélag sitt Víking R. og svo í Val.
ÍA endaði í 8. sæti í Pepsi-deildinni í sumar en liðið hefur leik í Fótbolta.net mótinu annað kvöld þegar það mætir Stjörnunni í Kórnum klukkan 20:15.