Fotbolti.net
09.01.17 - 18:31
Elvar Geir Magnússon

Ranieri besti stjóri heims 2016 (Staðfest)

Ranieri mætti með eiginkonu sinni.

Ranieri mætti með eiginkonu sinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalinn geðþekki Claudio Ranieri var valinn besti stjóri heims 2016 á galahátíð FIFA sem nú stendur yfir í Sviss. Ranieri náði þeim ótrúlega árangri að gera Leicester að Englandsmeisturum á liðnu ári. Eitthvað sem enginn gat spáð fyrir tímabilið.
Ranieri sló á létta strengi þegar hann tók við verðlaununum og sagði að þjálfaraferill sinn væri bara rétt að byrja, en hann er 65 ára.

Margir settu stór spurningamerki við það þegar Leicester ákvað að ráða Ranieri á sínum tíma en Ítalinn blés á allar gagnrýnisraddir og hampaði Englandsmeistaratitlinum í einu mesta fótboltaævintýri síðari ára.

Ranieri hafði betur gegn Zinedine Zidane, stjóra Real Madrid sem vann Meistaradeildina, og Fernando Santos sem stýrði Portúgal til sigurs á Evrópumótinu í Frakklandi.

Ranieri hlaut 22,6% atkvæða, Zidane 16,56% og Santos 16,24%.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.