Fotbolti.net
09.01.17 - 18:51
Elvar Geir Magnússon

Ronaldo valinn bestur í heimi hjá FIFA (Staðfest)

Ronaldo með verðlaununum, umboðsmanni sínum og sjálfum Sir Alex Ferguson.

Ronaldo með verðlaununum, umboðsmanni sínum og sjálfum Sir Alex Ferguson.

Canon

Mynd: Getty Images

Cristiano Ronaldo var valinn besti leikmaður heims 2016 af FIFA en þetta var tilkynnt á galahátíð í Sviss. Lionel Messi og Antoine Griezmann voru tilnefndir ásamt Ronaldo.

Á liðnu ári fagnaði Ronaldo sigri í Meistaradeild Evrópu með Real Madrid og vann Evrópukeppnina með Portúgal. Þá vann hann HM félagsliða með Real og vann gullknöttinn eftirsótta.
Ronaldo skákaði Lionel Messi og Antoine Griezmann sem einnig voru tilnefndir í kjörinu í kvöld.

Þetta er í fjórða sinn sem Ronaldo vinnur verðlaun FIFA sem besti leikmaður heims. Hann hlaut verðlaunin áður 2008, 2013 og 2014.

„Ég mun aldrei gleyma árinu 2016. Mér þykir leiðinlegt að einhverjir frá Barcelona séu ekki með okkur, en það er skiljanlegt,\" sagði Ronaldo þegar hann tók við verðlaununum en Lionel Messi mætti ekki á galahátíðina.

„Ég er viss um að Linel Messi sé búinn að slökkva á sjónvarpinu núna.\"

Ronaldo fékk 34,54% atkvæða, Messi 26,42% og Griezmann 7,53%.
Ronaldo valinn bestur í heimi hjá FIFA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.