Fotbolti.net
09.01.17 - 11:13
Magnús Már Einarsson

Tiago Ilori frá Liverpool til Reading (Staðfest)

Tiago Ilori frá Liverpool til Reading (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Reading hefur keypt varnarmanninn Tiago Ilori frá Liverpool á 3,75 milljónir punda.

Ilori kom til Liverpool frá Sporting Lisabon árið 2013 á sjö milljónir punda.

Síðan þá hefur Ilori einungis leikið þrjá leiki með Liverpool en þeir voru allir í enska bikarnum.

Hinn 23 ár gamli Ilori hefur meðal annars farið til Aston Villa og Bordeaux á láni undanfarin ár.
Ilori er nú farinn til Reading í Championship deildinni en stjóri þar er gamli varnarjaxlinn Jaap Stam.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.