Fotbolti.net
09.01.19 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fram fær 18 ára Pólverja - Jakimoski farinn (Staðfest)

Mihajlo Jakimoski.

Mihajlo Jakimoski.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Makedóníumaðurinn Mihajlo Jakimoski hefur yfirgefið herbúðir Fram eftir eitt tímabil hjá Safamýrarfélaginu.
Jakimoski, sem spilar vinstra megin á vellinum, spilaði 23 leiki í deild og bikar síðasta sumar og skoraði í þessum leikjum tvö mörk.

Hann er einn fimm leikmanna sem hefur yfirgefið Fram frá því síðasta tímabili lauk en Fram skipti einnig um þjálfara. Pedro Hipolito tók við ÍBV en í hans stað var Jón Sveinsson ráðinn.

Til Fram í vetur hafa hingað til komið Hilmar Freyr Bjartþórsson, Matthías Króknes Jóhannsson og markvörðurinn Ólafur Íshólm. Fram hefur einnig bætt við sig Pólverjanum Krystian Szopa.

Krystian er 18 ára gamall og hann kemur í 2. flokk hjá Fram, hann er á elsta ári í 2. flokk. „Miðað við samsetninguna á leikmannahópnum okkar þetta árið þá eru töluverðar líkur á því að hann komi við sögu í meistaraflokki í sumar," segir Daði Guðmundsson, úr meistaraflokksráði karla hjá Fram.

„Hann er öflugur strákur. Örvfættur og spilar helst sem vinstri bakvörður. Hann kemur frá liði sem heitir Arka Gdynia."

Fram endaði í níunda sæti á síðasta tímabili í Inkasso-deild karla.

Komnir:
Hilmar Freyr Bjartþórsson frá Leikni F.
Krystian Szopa frá Póllandi
Matthías Króknes Jóhannsson frá Vestra
Ólafur Íshólm Ólafsson frá Breiðabliki (á láni)

Farnir:
Atli Gunnar Guðmundsson í Fjölni
Dino Gavric í Þór
Guðmundur Magnússon í ÍBV
Kristófer Jacobson Reyes í Ratchaburi FC (Tælandi)
Mihajlo Jakimoski til Makedóníu

Sjá einnig:
Fram fær þrjá leikmenn - Ólafur Íshólm þar á meðal (Staðfest)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.