09.01.19 - 13:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stoke stelur stjóranum frá Luton (Staðfest)

Hefur náð góðum árangri sem stjóri Luton.

Mynd: Getty Images

Stoke hefur ráðið Nathan Jones sem nýjan knattspyrnustjóra sinn. Hann tekur við af Gary Rowett sem var rekinn í gær.
Jones er 45 ára gamall Walesverji. Sem leikmaður spilaði hann í neðri deildunum á Spáni, en hann lék einnig með Southend United, Brighton og Yeovil Town á Englandi.
Jones var spilandi aðstoðarþjálfari undir lok ferilsins hjá Yevoil. Hann fór þaðan og vann í akademíunni hjá Charlton, en árið 2013 gerðist hann aðstoðarstjóri Brighton.
Hann hætti hjá Brighton árið 2016 til þess að gerast stjóri Luton sem var þá í D-deildinni. Hann bjargaði Luton frá falli á sínu fyrsta tímabili við stjórnvölinn og kom hann liðinu upp í C-deild fyrir þessa leiktíð. Luton hefur verið að spila frábærlega á þessari leiktíð og er sem stendur í öðru sæti.
Jones stekkur nú frá borði hjá Luton og tekur við Stoke sem er í 14. sæti Championship-deildarinnar. Stoke féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

71 - Since his first match in charge of Luton in January 2016, only Chris Wilder (77), Mauricio Pochettino (75) and Paul Cook (72) have won more league matches in England's top four tiers than Nathan Jones (71). Pottering. pic.twitter.com/pnRhAwEOGD
— OptaJoe (@OptaJoe) January 9, 2019