09.02.17 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Jordan Farahani í ÍR (Staðfest)

Mynd: ÍR

Mynd: ÍR
ÍR hefur fengið kanadíska leikmanninn Jordan Farahani í sínar raðir frá Hetti á Egilsstöðum.
Jordan er miðju og varnarmaður en hann hefur leikið með Hetti undanfarin tvö tímabil.

Í fyrra skoraði Jordan eitt mark í níu leikjum í 2. deildinni en meiðsli settu strik í reikninginn hjá honum.
Árið 2015 skoraði hann tvö mörk í 19 leikjum með Hetti.
Jordan hefur reynt fyrir sér bæði hjá ÍA og Val í vetur en hann hefur nú samið við ÍR og mun leika með liðinu í Inkasso-deildinni í sumar.
Jordan byrjar komandi tímabil í tveggja leikja banni en hann fékk rauða spjaldið gegn Gróttu í lokaumferðinni í 2. deildinni í fyrra.