09.02.18 - 08:15
Magnús Már Einarsson
Brynjar Hlöðvers til HB (Staðfest)

Brynjar í leik síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar í leik síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Hlöðversson, fyrirliði Leiknis R, hefur gengið til liðs við HB í Færeyjum. Leiknir greinir frá þessu á heimasíðu sinni.
Heimir Guðjónsson er þjálfari HB en hann fékk Brynjar til félagsins á reynslu á dögunum.

„Brynjar gerir níu mánaða samning við Færeyska stórveldið sem ætlar sér stóra hluti í sumar og munu barátta og ósérhlífni Brynjars koma að góðum notum í baráttunni um Færeyska meistaratitilinn,\" segir á Leiknir.com.
Hinn 28 ára gamli Brynjar var samningslaus og gat því gengið frítt til liðs við HB eftir að hafa leikið með Leikni allan sinn feril.
„Ég persónulega er mjög spenntur fyrir Færeyjar ævintýri. Það er margt sem heillar. Heimir er náttúrulega stór partur af því. Það segir ágætlega mikið um metnaðinn hjá HB að hafa nælt í hann. Maður finnur mjög mikið fyrir því að HB ætli sér stóra hluti á næsta tímabili enda stærsti klúbburinn í Færeyjum út frá sögulegu samhengi,\" sagði Brynjar við Fótbolta.net á dögunum.
„Mér líst mjög vel á Færeyjar og Þórshöfn. Mjög fallegur og kósí staður. Fólkið er vingjarnlegt og hjálpsamt og stemningin í klúbbnum góð. Það er mikið af sjálfboðaliðum í vinnu þar.\"
„Völlurinn er mjög flottur og aðstaðan öll til fyrirmyndar. Gæði leikmanna og hópurinn sem slíkur lofar góður miðað við það litla sem ég sá. Það sést að menn vilja sanna sig fyrir nýjum þjálfara og það er mikið hungur hjá mönnum.\"