Fotbolti.net
09.02.18 - 23:00
Ingólfur Stefánsson

Indriði Áki í Hauka (Staðfest)

Indriði Áki í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Indriði Áki Þorláksson hefur skrifað undir hjá Haukum og mun spila með þeim í Inkasso deildinni næsta sumar.

Indriði lék síðast með Fram en hann rifti samningi sínum við félagið síðastliðið haust.

Hann lék í tvö ár með Fram og var í lykilhlutverki með liðinu í Inkasso deildinni síðasta sumar.

Indriði, sem er fæddur 1995, er uppalinn á Skaganum, en fór ungur til Vals. Hann hefur einnig leikið með Leikni R. og Keflavík.
Haukar hefja leik í Lengjubikarnum á sunnudag gegn Leikni R.

Komnir:
Indriði Áki Þorláksson frá Fram
Jökull Blængsson frá Fjölni (Á láni)

Farnir:
Aron Jóhannsson í Grindavík
Björgvin Stefánsson í KR
Harrison Hanley
Sindri Scheving í Víking R. (Var á láni)
Terrance William Dieterich í Stjörnuna (Var á láni)
Trausti Sigurbjörnsson í Víking R.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.