09.02.18 - 14:27
Elvar Geir Magnússon
Sólon Breki í Leikni (Staðfest)

Sólon Breki Leifsson.

Mynd: Leiknir.com

Sólon Breki Leifsson.

Mynd: Leiknir.com
Sóknarmaðurinn Sólon Breki Leifsson er genginn til liðs við Leikni í Breiðholti frá Vestra. Sólon samdi við Vestra í nóvember síðastliðnum og þessi félagaskipti koma því mikið á óvart.
Sólon Breki er fæddur árið 1998 og er uppalinn hjá Breiðabliki. Hann lék ellefu leiki með Breiðabliki í Pepsi-deildinni í sumar.
Árið 2016 lék hann 11 leiki með Vestra í 2.deildinni og skoraði 8 mörk. Einnig á hann fjölmarga landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.
Leiknir og Sólon gera með sér tveggja ára samning og er því Sólon samningsbundinn Leikni til 2020.
„Við bjóðum Sólon velkominn í Breiðholtið og óskum honum góðs gengis í Leiknistreyjunni,\" segir á heimasíðu Leiknis.
Leiknir hafnaði í fimmta sæti í Inkasso-deildinni í fyrra.
Komnir í Leikni:
Ernir Bjarnason frá Breiðabliki
Sólon Breki Leifsson frá Breiðabliki
Farnir:
Anton Freyr Ársælsson í Fjölni (Var á láni)
Halldór Kristinn Halldórsson hættur
Ragnar Leósson í ÍA
Brynjar Hlöðversson í HB