Fotbolti.net
09.02.18 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Unnar Már í Njarðvík (Staðfest)

Unnar (til hægri) í baráttu við Kenneth Hogg leikmann Njarðvíkur í fyrra.  Þeir verða núna liðsfélagar.

Unnar (til hægri) í baráttu við Kenneth Hogg leikmann Njarðvíkur í fyrra. Þeir verða núna liðsfélagar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson

Njarðvík hefur fengið varnarmanninn Unnar Má Unnarsson í sínar raðir frá Víði Garði.

Unnar, sem er 23 ára gamall, hefur æft með Njarðvíkingum í vetur en liðið er á leið í Inkasso-deildina eftir að hafa unnið 2. deildina í fyrra.

Unnar er uppalinn í Keflavík en hann lék tíu leiki í Pepsi-deildinni 2014 og sjö leiki ári síðar.
Eftir hlé frá fótbolta árið 2016 lék Unnar síðan þrettán leiki með Víði í 2. deildinni í fyrra.

Njarðvíkingar hefja leik í A deild Lengjubikarsins á sunnudag þegar þeir heimsækja Íslandsmeistara Vals á Hlíðarenda.

Komnir:
Helgi Þór Jónsson frá Víði Garði
Sigurbergur Bjarnason frá Keflavík
Unnar Már Unnarsson frá Víði Garði

Farnir:
Gualter Aurelio Oliveira Bilro til Portúgal
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.