Fotbolti.net
09.02.22 - 08:13
Elvar Geir Magnússon

Overmars hikaði ekki við að senda typpamyndir

Marc Overmars.

Marc Overmars.

Canon

Mynd: EPA

Tilkynnt var um síðustu helgi að Marc Overmars væri hættur sem yfirmaður fótboltamála hjá hollenska stórliðinu Ajax eftir að upp komst um áreiti af hans hálfu gagnvart kvenkyns samstarfsmönnum hjá félaginu.
Overmars sendi samstarfskonum sínum óviðeigandi skilaboð yfir margra mánaða tímabil.

Nú hafa hollenskir fjölmiðlar ýtt ýmsu upp á yfirborðið en hollenski miðillinn NRC ræddi við ellefu konur sem unnu með Overmars og þær lýstu hegðun hans.

Þær segja að eitruð karlrembu menning hafi viðgengist á skrifstofum Ajax og talað sé á niðrandi hátt til kvenna.

Overmars er sakaður um kynferðislega áreitni og sagt er að hann hafi ekki hikað við að senda óumbeðnar typpamyndir til kvenna. Ein af konunum lýsir því að hann hafi sent sér typpamynd sem tekin var inni á salerni í höfuðstöðvum hollenska félagsins.

„Ég skammast mín fyrir eigin hegðun. Í síðustu viku var ég látinn vita af því hvernig mín hegðun hefði áhrif á aðra. Því miður tók ég ekki eftir því þegar ég fór yfir persónuleg mörk hjá samstarfsfólki mínu en eftir að mér var gert það ljóst fann ég fyrir miklum þunga leggjast yfir mig," sagði Overmars eftir að hann lét af störfum.

„Svona hegðun er óafsakanleg fyrir mann í minni stöðu og ég vil biðjast afsökunar. Ég sé núna að ég gerði mistök en það er of seint, það er ekkert í stöðunni fyrir mig annað en að segja af mér."

Overmars var yfirmaður hjá Ajax í rétt tæpan áratug og var nýlega búinn að skrifa undir nýjan samning til 2026.
Frá heimavelli Ajax í Amsterdam.

Frá heimavelli Ajax í Amsterdam.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.