Fotbolti.net
09.03.19 - 20:51
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Darren Moore rekinn frá West Brom (Staðfest)

Darren Moore hefur verið rekinn frá West Brom.

Darren Moore hefur verið rekinn frá West Brom.

Canon

Mynd: Getty Images

Darren Moore hefur verið rekinn frá West Brom en þetta staðfesti félagið í kvöld eftir 1-1 jafntefli á heimavelli við botnlið Ipswich.
Moore var ráðinn bráðabirgðastjóri West Brom eftir að Alan Pardew var rekinn frá félaginu síðasta vor og Moore fékk það verkefni að stýra liðinu út tímabilið, það gekk vel og West Brom tilkynnti það eftir tímabilið að hann myndi stýra liðinu áfram.

Eftir tvö töp og eitt jafntefli í síðustu þremur leikjum var Moore rekinn en hann skilur við liðið í 4. sæti Championship deildarinnar.

Í yfirlýsingu West Brom segir: „Þessi ákvörðun var tekin eftir slæm úrslit undarfarið sem hafa valdið því að West Brom hefur fjarlægst 2. sætið sem gefur sjálfkrafa sæti í úrvalsdeildinni."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.