Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. mars 2021 06:00
Victor Pálsson
Zlatan tilbúinn að framlengja - „Eins og að vera án barnanna"
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic er meira en tilbúinn að skrifa undir nýjan samning við AC Milan ef stjórn félagsins er reiðubúin í að græja það.

Zlatan er 39 ára gamall en hann hefur þrátt fyrir það verið frábær á tímabilinu og er með 16 mörk í 21 leik.

Meiðsli hafa hrjáð sænska framherjann undanfarið sem var ekki með gegn Verona í 2-0 sigri á sunnudag.

„Ég veit ekki, við þurfum að sjá til. Ef Paolo Maldini vill það þá er ég klár," sagði Zlatan.

„Ég vildi ná Verona leiknum því ég er of mikið inni og saknaði liðsins. Þegar ég eyði dag án þeirra þá er það eins og að eyða dag án barnanna."

Samningur Zlatan við ítalska félagið rennur út næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner