Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fim 09. apríl 2026 18:24
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarliðin í Sambandsdeildinni: Albert byrjar á Selhurst Park
Mynd: EPA
Tekst Glasner að vinna annan titil við stjórnvölinn hjá Crystal Palace?
Tekst Glasner að vinna annan titil við stjórnvölinn hjá Crystal Palace?
Mynd: EPA
Það eru þrír leikir á dagskrá í 8-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar í kvöld þar sem Crystal Palace tekur á móti Alberti Guðmundssyni og félögum í liði Fiorentina í stórleik kvöldsins.

Palace er meðal sterkustu liða Sambandsdeildarinnar í ár en Fiorentina hefur tvisvar sinnum komist í úrslitaleik keppninnar á síðustu þremur árum.

Báðum liðum hefur gengið illa á yfirstandandi deildartímabili þar sem Fiorentina er í afar óvæntri fallbaráttu eftir hörmulegan fyrri hluta tímabils.

Oliver Glasner, fráfarandi þjálfari Crystal Palace, mætir til leiks með sitt sterkasta byrjunarlið gegn lærlingum Paolo Vanoli sem gera slíkt hið sama þrátt fyrir að vera án ýmissa lykilmanna vegna meiðsla.

Palace skartar mönnum á borð við Yeremy Pino, Brennan Johnson og Jefferson Lerma á sínum varamannabekk á meðan menn á borð við Moise Kean, Manor Solomon og Fabiano Parisi eru fjarverandi úr liði Fiorentina.

Jack Harrison, lánsmaður frá Leeds United, er í byrjunarliði Fiorentina.

Mainz og Strasbourg eigast einnig við í kvöld þar sem má sjá nokkur kunnugleg nöfn í liði Strasbourg sem hefur sterka tengingu við Chelsea. Valentín Barco, sem er sagður á leið til Chelsea næsta sumar, er í byrjunarliðinu ásamt Julio Enciso, Ben Chilwell og Andrew Omobamidele.

Að lokum eigast Shakhtar Donetsk og AZ Alkmaar við í Póllandi.

Crystal Palace: Henderson, Richards, Lacroix, Canvot, Munoz, Wharton, Kamada, Mitchell, Guessand, Sarr, Mateta
Varamenn: Johnson, Pino, Lerma, Riad, Sosa, Hughes, Devenny, Clyne, Cardines, Benitez, Matthews

Fiorentina: De Gea, Dodo, Pongracic, Ranieri, Gosens, Fabbian, Fagioli, Ndour, Harrison, Albert Guðmundsson, Piccoli
Varamenn: Mandragora, Comuzzo, Fazzini, Puzzoli, Leonardelli, Kouadio, Kospo, Deli, Christensen, Braschi, Balbo



Mainz: Batz, Widmer, Da Costa, Posch, Kohr, Mwene, Kawasaki, Sano, Nebel, Tietz, Weiper

Strasbourg: Penders, Doue, Doukoure, Omobamidele, Chilwell, Oyedele, El Mourabet, Barco, Yassine, Godo, Enciso



Shakhtar D: Riznik, Tobias, Bondar, Matviienko, Henrique, Ocheretko, I.Silva, Pedrinho, Newerton, Alisson, K.Elias

AZ Alkmaar: Zoet, Maikuma, Goes, Penetra, Van Dujil, De Wit, Mijnans, Smit, Patati, Sadiq, Parrott
Slapp
banner