Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fim 09. apríl 2026 22:14
Ívan Guðjón Baldursson
Emery og Watkins: Vorum heppnir í fyrri hálfleik
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Unai Emery þjálfari Aston Villa var kátur eftir flottan sigur í Bologna í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar fyrr í kvöld.

Villa átti slakan fyrri hálfleik en tókst að ná forystunni með skallamarki eftir hornspyrnu skömmu fyrir hálfleiksflautið og tvöfaldaði Ollie Watkins forystuna eftir vandræðagang í varnarlínu Bologna.

„Það er stórkostlegt að vinna útileikinn og það er margt sem ég var ánægður með í þessum leik en þó líka hlutir sem við eigum að gera betur. Við vorum svolítið feimnir í fyrri hálfleik, við áttum lítið af heppnuðum sendingum og töpuðum boltanum auðveldlega. Þeir skoruðu en sem betur fer var mjög tæp rangstaða dæmd eftir athugun," sagði Emery að leikslokum.

„Við gáfum ekki góð færi á okkur og lögðum mikla áherslu á föst leikatriði fyrir leikinn, bæði varnarlega og sóknarlega. Það skilaði sér."

Watkins skoraði þriðja mark Aston Villa í uppbótartíma til að innsigla 1-3 sigur. Hann skoraði eftir hornspyrnu, líkt og Ezri Konsa gerði í fyrri hálfleik.

„Við vorum heppnir í fyrri hálfleik. Við verðskulduðum ekki að fara inn í leikhléð með forystuna en í síðari hálfleik vorum við stórkostlegir fyrstu 20 til 25 mínúturnar. Við sköpuðum færri og pressuðum eins og við höfðum lagt upp með að gera í fyrri hálfleik en tókst ekki. Við stjórnuðum leiknum stærsta hluta seinni hálfleiksins og svo minnkuðu þeir muninn undir lokin, en strákarnir brugðust frábærlega við og skoruðu annað mark.

„Þeir munu leggja allt í sölurnar í seinni leiknum. Við megum ekki mæta í þann leik til að halda forystunni, við verðum að vera með gott leikskipulag gegn þeim."


Ollie Watkins skoraði tvennu og tók í svipaða strengi og þjálfarinn sinn. „Við vorum undir mikilli pressu í fyrri hálfleik og vorum heppnir að fara inn í leikhléð með forystu," sagði Watkins meðal annars, en hann er að reyna að komast í lokahóp enska landsliðsins fyrir HM á næsta ári.

„Ég er spenntur fyrir lokahnykk tímabilsins. Ég er hungraður í mörk."

Watkins er 30 ára gamall og hefur skorað 12 mörk í 44 leikjum á tímabilinu.
Slapp
banner