Leikjum kvöldsins í Evrópudeildinni er lokið þar sem ensku liðin stóðu sig vel á erfiðum útivöllum.
Aston Villa heimsótti Bologna til Ítalíu og gerði færanýting gestanna gæfumuninn. Það stefndi allt í markalausan fyrri hálfleik þegar Ezri Konsa skoraði með skalla eftir hornspyrnu. Konsa fékk auðveldan skalla í opið mark eftir misheppnað úthlaup hjá Federico Ravaglia.
Ollie Watkins tvöfaldaði forystu gestanna í upphafi síðari hálfleiks eftir mikinn vandræðagang í varnarlínu Bologna eftir pressu frá Villa.
Bæði lið fengu færi til að bæta mörkum við leikinn áður en Jonathan Rowe, fyrrum leikmaður Norwich og Marseille, minnkaði muninn eftir glæsilegt einstaklingsframtak á lokamínútunum.
Bologna lagði mikið púður í sóknarleikinn í uppbótartímanum en fékk mark í bakið eftir herfilegan varnarleik í hornspyrnu, svo Watkins fékk boltann í lappirnar og gat ekki annað en skorað úr algjöru dauðafæri. Lokatölur 1-3 og er afar þung þraut sem bíður Bologna í seinni leiknum í næstu viku.
Nottingham Forest heimsótti þá portúgalska stórveldið FC Porto og tefldi Vítor Pereira þjálfari fram varaliði til að spara lykilmenn fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni.
Forest lenti undir snemma leiks þegar William Gomes skoraði eftir góða sókn heimamanna og slakan varnarleik gestanna, en Martim Fernandes jafnaði leikinn með ótrúlegu sjálfsmarki skömmu síðar. Fernandes ætlaði að senda boltann aftur á markvörð af um 40 metra færi en misreiknaði sig og setti boltann þess í stað í netið.
Heimamenn í Porto voru talsvert sterkari aðilinn í þessum leik en þeim tókst ekki að bæta öðru marki við þökk sé öflugum varnarleik og frábærum markvörslum hjá Stefan Ortega.
Lokatölur urðu því 1-1 og ríkir mikil eftirvænting fyrir seinni leikinn að viku liðinni.
Að lokum skoraði Freiburg þrjú mörk á heimavelli í þægilegum sigri gegn Celta Vigo.
Bologna 1 - 3 Aston Villa
0-1 Ezri Konsa ('44 )
0-2 Ollie Watkins ('51 )
1-2 Jonathan Rowe ('90 )
1-3 Ollie Watkins ('94 )
Porto 1 - 1 Nott. Forest
1-0 William Gomes ('11 )
1-1 Martim Fernandes ('13 , sjálfsmark)
Freiburg 3 - 0 Celta
1-0 Vincenzo Grifo ('10 )
2-0 Niklas Beste ('32 )
3-0 Matthias Ginter ('78 )


