Fotbolti.net
09.04.26 - 13:54
Elvar Geir Magnússon

Segir að Gylfi verði ekki með gegn Breiðabliki

Gylfi Þór Sigurðsson.

Gylfi Þór Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Þór Sigurðsson verður ekki með Víkingi í opnunarleik Bestu deildarinnar á morgun, þegar liðið mætir Breiðabliki í Fossvoginum.

Hjörvar Hafliðason segir frá því í hlaðvarpsþættinum Dr. Football að Gylfi verði ekki með í leiknum.

Gylfi fékk högg, bólgnaði upp og fór af velli í hálfleik gegn Fram í Mjólkurbikarnum síðasta laugardag.
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
TENGT EFNI

Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“

„Gylfi ætlar að reyna æfa í dag, fulla æfingu. Við þurfum að sjá til hvernig hann kemur út úr henni," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, við Fótbolta.net í gær.

Fyrsta umferð Bestu deildarinnar:

föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)

Heimild: Dr. Football

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.