Fotbolti.net
09.04.26 - 22:26
Ívan Guðjón Baldursson

Meiðslavandræði Tottenham halda áfram

Meiðslavandræði Tottenham halda áfram
Canon

Mynd: EPA

Tottenham Hotspur hefur verið að glíma við ótrúleg meiðslavandræði síðustu tvö tímabil og er liðið afar óvænt í fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni þegar sjö umferðir eru eftir af deildartímabilinu.
Mohammed Kudus er einn af lykilmönnum liðsins sem hafa verið að glíma við erfið meiðsli á tímabilinu. Hann meiddist framan á læri í úrvalsdeildarleik gegn Sunderland í janúar og var byrjaður að æfa aftur með hópnum hjá Tottenham þegar meiðslin spruttu aftur upp.

Þetta er mikill skellur fyrir úrvalsdeildarfélagið og eru líkur á að Kudus þurfi að fara í aðgerð, sem þýðir að hann kemur líklegast ekki meira við sögu á tímabilinu.

Kudus kom með beinum hætti að 9 mörkum í 26 lelikjum í öllum keppnum eftir að Tottenham borgaði um 55 milljónir punda til að kaupa kantmanninn úr röðum West Ham í fyrrasumar.

Tottenham er með 30 stig eftir 31 umferð, aðeins einu stigi fyrir ofan West Ham sem situr í fallsæti.

Wilson Odobert, Dejan Kulusevski, James Maddison, Guglielmo Vicario, Yves Bissouma og Ben Davies eru einnig meiddir og verða því ekki með á útivelli gegn Sunderland á sunnudaginn.

Góðu fréttirnar eru þær að Rodrigo Bentancur, Mathys Tel og Pape Sarr eru að snúa aftur.

Meiðslavandræði Tottenham halda áfram
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.