09.04.26 - 17:14
Elvar Geir Magnússon

Milan vonast til að sannfæra Lewandowski

Í leik með pólska landsliðinu

Mynd: EPA

Í leik með pólska landsliðinu

Mynd: EPA
Ítalskir fjölmiðlar segja að AC Milan hafi stigið á bensíngjöfina í tilraunum sínum til að fá pólska sóknarmanninn Robert Lewandowski sem verður líklega falur á frjálsri sölu í sumar.
Óvíst er hvort Lewandowski geri nýjan samning við Barcelona og Milan fylgist grannt með stöðu mála.
Ítalska félagið vonast til þess að leika sama leik og þegar félagið fékk Luka Modric á frjálsri sölu frá Real Madrid síðasta sumar en sá króatíski hefur leikið mjög vel.

TENGT EFNI
Lewandowski gæti fengið nýjan samning hjá Barcelona
Þrátt fyrir að verða 38 ára í ágúst hefur Lewandowski haldið áfram að raða inn mörkum fyrir Barcelona og er með 17 mörk og 3 stoðsendingar í 39 mótsleikjum á tímabilinu.
Calciomercato segir að AC Milan hafi verið í viðræðum við umboðsmann Lewandowski, Pini Zahavi.
Bandaríska MLS-félagið Chicago Fire vill einnig fá Lewandowski en AC Milan vonast til þess að boð um ítölsku A-deildina og líklega Meistaradeildina sé of freistandi fyrir Lewandowski.