Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fim 09. apríl 2026 23:10
Ívan Guðjón Baldursson
Stórveldi orðuð við Robertson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: EPA
Liverpool FC staðfesti fyrr í dag að skoski bakvörðurinn Andy Robertson mun yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í sumar.

Robertson er 32 ára gamall og er goðsögn hjá Liverpool eftir níu frábær ár með félaginu. Hann vill ekki vera varaskeifa hjá liðinu og er spenntur fyrir að hefja næsta kafla ferilsins.

Robertson var næstum búinn að semja við Tottenham í janúar en Liverpool neitaði að selja reynsluboltann.

Enskir fjölmiðlar segja að Tottenham hafi ennþá áhuga á Robertson en leikmaðurinn hefur fullt frelsi til að velja næsta skref sjálfur. Ítalíumeistarar Napoli hafa verið nefndir til sögunnar rétt eins og Atlético Madrid sem reyndu að kaupa Robertson síðasta sumar.

Juventus hefur einnig áhuga á bakverðinum ásamt hinum ýmsu stórveldum í Sádi-Arabíu.

Robertson var með fast sæti í byrjunarliði Liverpool þar til Milos Kerkez var keyptur úr röðum Bournemouth síðasta sumar.

   09.04.2026 18:07
Andy Robertson yfirgefur Liverpool í sumar (Staðfest)

Slapp
banner
banner