Fotbolti.net
09.04.26 - 10:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Útskýrir af hverju hann setti Salah ekki inn á

Útskýrir af hverju hann setti Salah ekki inn á
Canon

Mynd: EPA

Arne Slot, stjóri Liverpool, var spurður út í Mo Salah eftir leik Liverpool og PSG í gærkvöldi. Slot ákvað að byrja ekki með Salah í liðinu í gær og úr varð að Salah kom ekki við sögu í leiknum.

Lokatölur urðu 2-0 fyrir heimamönnum í París og voru yfirburðir heimamanna talsverðir.
Slot: Eitt af fáum skiptum sem ég hef þurft að taka mjög erfiða ákvörðun
TENGT EFNI

Slot: Eitt af fáum skiptum sem ég hef þurft að taka mjög erfiða ákvörðun

„Ég held að lokakafli leiksins hafi snúist meira um að lifa af frekar en að við fengjum færi til að skora. Maður veit aldrei, því á síðasta tíabili skoruðum við fimm mínútum fyrir leikslok þegar Harvey Elliott skorðaði þegar ég tók Mo af velli."

„En mér fannst þetta vera 20-25 mínútna kafli þar sem við vorum bara að verjast. Mo býr yfir svo miklum gæðum, en fyrir hann að verja sinn teig í 20-25 mínútur, ég mat þetta þannig að það væri betra fyrir hann að spara orkuna fyrir næstu leiki,"
sagði hollenski stjórinn.

Framundan er heimaleikur gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni á laugardag og svo er það heimaleikurinn gegn PSG á þriðjudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.