09.05.18 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Elín og Þórdís í Hauka (Staðfest)

Mynd: Haukar

Mynd: Haukar

Haukar hafa fengið liðsstyrk fyrir baráttuna í Inkasso-deild kvenna í sumar en þær Elín Helga Ingadóttir og Þórdís Elva Ágústsdóttir munu spila með liðinu í sumar.
Elín Helga er fædd árið 2000 og kemur að láni frá Stjörnunni en hún á að baki 11 baki með meistaraflokki í 1. deild og 11 leiki með U17 landsliði Íslands.
Þórdís Elva er uppalin í Haukum en hún fór í FH síðastliðið haust. Þórdís kemur einnig á láni en hún á að baki 41 leik með meistaraflokki kvenna hjá Haukum og sjö leiki með U17 landsliði Íslands.
Jakob Leó Bjarnason, þjálfari Hauka, segir að með þessum góða liðsstyrk sé hópurinn svo gott sem klár fyrir átök sumarsins. Báðar styrki þær hópinn mikið og auki samkeppnina sem er mjög mikilvægt ef árangur á að nást