Fotbolti.net
09.05.19 - 18:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

David Wagner nýr stjóri Schalke (Staðfest)

David Wagner nýr stjóri Schalke (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fyrrum stjóri Huddersfield, David Wagner, er tekinn við sem stjóri hjá Schalke.

Wagner og Huddersfield komust að samkomulagi um að Wagner myndi hætta þann 14. janúar á þessu ári. Wagner hefur ekki verið í starfi síðan.

Wagner er 47 ára og var leikmaður Schalke á árunum 1995-97. Á þeim tíma spilaði hann 29 deildarleiki og skoraði tvö mörk. Wagner lék sem framherji á leikmannaferli sínum.

Wagner er fæddur í Geinsheim við Rínarfljótið í Þýskalandi. Hann á þó átta landsleiki fyrir A-landsliði Bandaríkjana.

Wagner hóf þjálfaraferil sinn hjá varaliði Dortmund og stýrði því á árunum 2011-15. Árið 2015 tók hann svo við Huddersfield og kom þeim upp í úrvaldeildina vorið 2017 og hélt liðinu uppi á sinni fyrstu leiktíð í úrvalsdeildinni, þvert á spár flestra.

Wagner tekur við Schalke af Domenico Tedesco sem var rekinn í mars eftir vont gengi á leiktíðinni. Huub Stevens stýrði Schalke í millitíðinni. Wagner skrifar undir þriggja ára samning við Schalke. Schalke er eins og er í fimmtánda sæti Bundesliga og verður það að teljast mikil vonbrigði hjá félaginu sem lék í Meistaradeildinni á leiktíðinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.