Fotbolti.net
09.05.19 - 17:40
Arnar Daði Arnarsson

Skúli Sigurz í Aftureldingu (Staðfest)

Skúli í leik með ÍR síðasta sumar.

Skúli í leik með ÍR síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Skúli E. Kristjánsson Sigurz hefur gengið í raðir Aftureldingar frá Breiðabliki. Hann er kominn með leikheimild með Aftureldingu og gæti því spilað sinn fyrsta leik annað kvöld.

Skúli er uppalinn í Breiðabliki en hefur verið lánaður síðustu tvö tímabil.
Sumarið 2017 lék hann 20 leiki með Leikni í deild og bikar og hann hóf síðasta tímabil einnig á láni hjá Leikni R. en lék þó aðeins einn leik með liðinu í bikarnum í upphafi sumars.

Í kjölfarið var hann lánaður í ÍR en lék aðeins tvo leiki með liðinu í Inkasso-deildinni. Nú er hann hinsvegar mættur í Mosfellsbæinn og kominn til nýliðana.

Afturelding mætir Leikni R. í sínum fyrsta heimaleik í Inkasso-deildinni annað kvöld klukkan 19:15.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.