Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 09. maí 2021 10:30
Aksentije Milisic
Man Utd reynir að fá Bellingham frekar en Sancho - Kane til Chelsea?
Powerade
Mynd: Getty Images
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images
Endurkoma?
Endurkoma?
Mynd: Getty Images
Sulemana, Cavani, Rice, Kane, Bellingham, De Ligt, Szczesny og fleiri koma við sögu í slúðurpakka dagsins.


Manchester United og Ajax berjast um 19 ára gamlan vængmann frá Ghana, Kamaldeen Sulemana. Hann spilar með FC Nordsjælland í Danmörku. (Mail on Sunday)

Manchester United mun bjóða Edinson Cavani (34) launahækkun í von um að sóknarmaðurinn taki eitt tímabil í viðbót með liðinu. (Sun on Sunday)

Declan Rice hefur gefið það í skyn að hann muni yfirgefa West Ham og fara í lið sem er í Meistaradeild Evrópu, mistakist West Ham að ná topp fjórum. (Football Insider)

Harry Kane (27), framherji Tottenham, er á óskalistanum hjá Chelsea og er félagið reiðubúið til þess að bjóða stóra upphæð í enska landsliðsmanninn. (Football Insider)

Fyrirliði enska landsliðsins, Harry Kane, er tilbúinn til þess að fá Daniel Levy til að skoða þau tilboð sem koma í sig. (Sun on Sunday)

Manchester United hefur meiri áhuga á að fá Jude Bellingham (17) frá Dortmund heldur en Jadon Sancho (21). (Manchester Evening News)

Bellingham er sagður ánægður hjá Dortmund og mun félagið ekki selja leikmanninn. (Sport 1)

Dortmund vill heldur ekki selja Erling Braut Haaland (20) og mun félagið einungis skoða tilboð sem eru 180 milljónir evra eða meira. (Marca)

Juventus hefur engan áhuga á að selja Matthijs de Ligt en Chelsea og Barcelona hafa áhuga á þessum 21 árs gamla varnarmanni. (Tuttosport)

Everton hefur áhuga á miðjumanni Fulham, Andre-Frank Zambo Anguissa (25). (Sunday Mirror)

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hefur beðið yfirmenn sína um að fá að eyða miklum pening í sumar svo að Arsenal komist aftur í hóp bestu liða í ensku úrvalsdeildinni. (Sunday Star)

Newcastle hefur framlengt samning sinn við Fabian Schar, 29 ára varnarmann liðsins. (Blick)

Everton gæti keypt Wojciech Szczesny, markvörð Juventus, en PSG hefur einnig áhuga á þessum 31 árs gamla markverði. (Calciomercato)

West Ham hefur áhuga á að fá Marko Arnautovic aftur til félagsins. Hann spilar með Shanghai SIPG í Kína en Crystal Palace, Everton, Inter Milan og AC Milan hafa einnig verið orðuð við þennan 32 ára gamla leikmann. (Sunday Mail)

Nýr stjóri AS Roma, Jose Mourinho, hefur áhuga á að fá Andrea Belotti, framherja Torino. Þá er Mauro Icardi einnig til skoðunar sem en félagið ætlar að reyna að halda Edin Dzeko áfram hjá liðinu. (Corriere dello Sport)

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að Takumi Minamino, sem er á láni hjá Southampton, eigi framtíð hjá Liverpool og að hann sé í plönum hans í framtíðinni. (Goal)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner