Fotbolti.net
09.06.17 - 16:15
Magnús Már Einarsson

Monk tekinn við Middlesbrough (Staðfest)

Monk tekinn við Middlesbrough (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Garry Monk hefur verið ráðinn stjóri Middlesbrough en félagið staðfesti þetta í dag.

Middlesbrough féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor en Monk á að reyna að koma liðinu upp á nýjan leik.

Steve Agnew kláraði tímabilið sem stjóri Boro eftir að Aitor Karanka var rekinn.

Agnew fékk ekki áframhaldandi samning og Monk hefur nú tekið við.
Hinn 38 ára gamli Monk hætti hjá Leeds í síðasta mánuði eftir að hafa endað í sjöunda sæti í Championship deildinni með liðinu.

Monk var áður stjóri Swansea árin 2014 og 2015.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.