09.06.17 - 11:30
Magnús Már Einarsson
Slutsky tekinn við Hull (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Leonid Slutsky hefur verið ráðinn stjóri Hull City en liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni í síðasta mánuði.
Marco Silva hætti hjá Hull eftir fallið til að taka við Watford.
Slutsky tekur nú við af honum en hann þjálfaði rússneska landsliðið á EM í fyrra.
Hinn 46 ára gamli Slutsky hefur einnig orðið þrívegis meistari með CSKA Moskvu.

Slutsky hefur verið að undirbúa sig fyrir að starfa á Englandi en hann hefur verið að læra ensku undanfarna fimm mánuði.