Fotbolti.net
09.06.18 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kongolo dýrastur í sögu Huddersfield (Staðfest)

Kongolo verður áfram í Huddersfield.

Kongolo verður áfram í Huddersfield.

Canon

Mynd: Getty Images

Huddersfield hefur fest kaup á hollenska varnarmanninum Terence Kongolo frá Mónakó fyrir metfé. Samkvæmt <a href=\"http://www.skysports.com/football/news/11740/11398982/huddersfield-sign-terence-kongolo-from-monaco-for-club-record-fee\" target=\"_blank\">Sky Sports er kaupverðið 17,5 milljónir punda</a>.

Kongolo kom á láni til Huddersfield í janúar frá Mónakó og spilaði 17 leiki fyrir félagið.

Það mun bætast við leikjafjöldann því hann hefur nú skrifað undir fjögurra ára samning við félagið.
Kongolo er einungis 24 ára gamall. Hann er varnarmaður, getur spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður, og á að baki fjóra leiki fyrir hollenska landsliðið.

„Þetta er stór yfirlýsing fyrir okkur,\" sagði David Wagner, stjóri Huddersfield, eftir að félagaskiptin voru staðfest. „Við vissum að hann væri frábær leikmaður þegar við fengum hann á láni í janúar, en frammistaða hans fór fram úr okkar væntingum.\"

Huddersfield komst upp í ensku úrvalsdeildina fyrir síðasta tímabil og náði að halda sér uppi, endaði í 16. sæti fjórum stigum frá falli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.