09.06.18 - 12:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Patrik Sigurður seldur til Brentford (Staðfest)

Patrik Sigurður er kominn til Brentford.

Mynd: Facebook - Breiðablik

Patrik Sigurður er kominn til Brentford.

Mynd: Facebook - Breiðablik
Breiðablik og Brentford hafa komist að samkomulagi um að Patrik Sigurður Gunnarsson gangi til liðs við síðarnefna félagið. Þetta kemur fram á <a href=\"https://www.facebook.com/fotbolti/posts/2186616508021126 \" target=\"_blank\">Facebook-síðu Breiðablik</a>. Brentford er í ensku Championship-deildinni sem er sú næst efsta á Englandi.
Patrik, sem er fæddur árið 2000 er uppalinn Bliki, og byrjaði að æfa í 8.flokki félagsins. Hann hefur verið reglulegur partur af meistaraflokkshópi Breiðabliks undanfarin tvö keppnistímabil en í vor var hann lánaður til ÍR í Inkasso deildinni. Þar spilaði hann fimm leiki í deild og þrjá í bikar.
Patrik hefur leikið 10 unglingalandsleiki fyrir Íslands hönd með U17 og U18 landsliðunum.
Patrik er þriðji leikmaðurinn úr 2000 árganginum sem gengur til liðs við atvinnumannalið erlendis. Á síðasta ári fóru þeir Arnór Borg Guðjohnsen og Ágúst Eðvald Hlynsson til erlendra liða. Arnór Borg fór til Swansea í Wales og Ágúst Eðvald er hjá Bröndby.

Patrik Sigurður Gunnarsson seldur til Brentford!
— Breiðablik FC (@BreidablikFC) June 9, 2018
Breiðablik og Brentford hafa komist að samkomulagi um að Patrik Sigurður Gunnarsson gangi til liðs við síðarnefna félagið. Brentford er í ensku Championship deildinni... https://t.co/DoTFKOfuF7