mið 09. júní 2021 12:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Foden var spurður út í uppákomuna á Íslandi
Foden er búinn að lita hárið
Foden er búinn að lita hárið
Mynd: Getty Images
Phil Foden er í leikmannahópi enska landsliðsins sem tekur þátt í Evrópumótinu. Foden er 21 árs og á að baki sex landsleiki. Það var eftirminnilegt síðasta haust þegar hann var rekinn heim til Englands eftir ævintýri á Hótel Sögu þegar England mætti Íslandi í Þjóðadeildinni.

Foden og liðsfélagi hans, Mason Greenwood, buðu tveimur íslenskum stelpum upp á hótelherbergi og brutu með því sóttvarnarreglur. Þeir voru sendir úr herbúðum enska liðsins og var hegðun þeirra fordæmd.

Lestu meira um málið:
Segir frá nóttinni með Foden og Greenwood í einkaviðtali

Foden var spurður út í þetta á fréttmannafundi í gær. „Ég gerði risastór mistök," sagði Foden á fundi sem haldinn var í herbúðum enska liðsins.

„Ég var ungur en Gareth sagði að ég væri að gera flotta hluti og ég ætti að standa mig áfram vel, þá myndi ég fá annað tækifæri."

„Ég lagði hart að mér en það eru ekki margir stjórar sem hefðu gefið mér annað tækifæri, ég þakka Gareth Souhgate fyrir að gefa mér annað tækifæri,"
sagði Foden.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner