Það eru mörg félög sem hafa áhuga á að festa kaup á Tosin Adarabioyo, varnarmanni Fulham, í sumar.
Adarabioyo er 23 ára gamall og er falur fyrir 10 milljónir punda vegna söluákvæðis í samningi hans.
Miðvörðurinn á fjórtán leiki að baki fyrir yngri landslið Englands og hefur spilað fyrir Manchester City, West Brom og Blackburn á ferlinum. Hann var fastamaður í liði Fulham sem féll úr úrvalsdeildinni í vor.
Adarabioyo er með tvöfaldan ríkisborgararétt og gæti því valið að spila fyrir landslið Nígeríu í framtíðinni.
Hann þótti meðal betri leikmanna Fulham á tímabilinu og hefur meðal annars verið orðaður við Arsenal.
Athugasemdir