Fotbolti.net
19.06.26 - 13:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Framlína framtíðarinnar gríðarlega spennandi

Orri Steinn Óskarsson.

Orri Steinn Óskarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Núna á dögunum var því velt upp í pistli hér á Fótbolta.net hvernig landslið Íslands gæti litið út á HM 2030, ef við komumst þangað.

Möguleikarnir í framlínu framtíðarinnar eru spennandi, sérstaklega ef við spilum með tvo frammi eins og við höfum oft gert.
Hve margir úr Bestu deildinni gætu spilað á næsta HM?
TENGT EFNI

Hve margir úr Bestu deildinni gætu spilað á næsta HM?

Í pistlinum var því velt upp að framlínan gæti verið svona:

Sókn: Orri Steinn Óskarsson (Real Sociedad)
Leikmaðurinn sem mun vonandi leiða okkur út mótið. Orri er frábær sóknarmaður sem hefur sýnt hvað hann getur þegar hann hefur komið sér út á völlinn. Því miður hefur hann verið óheppinn með meiðsli að undanförnu, en vonandi eru þau bara að baki. Var frábær með FC Kaupmannahöfn í Danmörku og Real Sociedad keypti hann á metfé. Orri hefur nú þegar skorað níu landsliðsmörk og það er alls ekkert ólíklegt að hann bæti markametið í framtíðinni, fyrirliðinn sjálfur. Verður 25 ára þegar mótið fer fram 2030.

Sókn Viktor Bjarki Daðason
Við förum í stóri, stóri framlínu með Viktor Bjarka frammi með Orra. Viktor er að taka þá leið sem Orri fór, taka Kaupmannahafnarskólann. Viktor Bjarki er bara 17 ára gamall og var að skora á Camp Nou í Meistaradeildinni um daginn. Þetta er leikmaður sem mun spila með einhverjum af stærstu félögum Evrópu í framtíðinni ef allt er eðlilegt. Var valinn í A-landsliðshópinn um daginn en gat því miður ekki spilað vegna meiðsla. Fyrsti landsleikurinn mun koma fljótlega. Verður 21 árs, að verða 22 ára, þegar mótið 2030 fer fram.

Svo eru margir aðrir kostir í stöðunni, eins Andri Lucas og Daníel Tristan Guðjohnsen en hægt er að skoða alla möguleikana í pistlinum sjálfum.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 17. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Hvernig gæti Ísland litið út á næsta HM?
TENGT EFNI

Hvernig gæti Ísland litið út á næsta HM?

Daníel Tristan og Viktor Bjarki fagna marki.

Daníel Tristan og Viktor Bjarki fagna marki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Tristan Guðjohnsen.

Daníel Tristan Guðjohnsen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.