Fotbolti.net
19.06.26 - 13:10
Kári Snorrason

Komið frábærlega inn við erfiðar aðstæður

Með bestu tölfræðina af markvörðum deildarinnar.

Með bestu tölfræðina af markvörðum deildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Snær Friðriksson hefur varið mark Víkings í fjarveru Ingvars Jónssonar sem glímir við krabbamein. Aron hefur alls leikið sjö leiki í Bestu deildinni, þar af einn hálfleik, og aðeins fengið á sig tvö mörk.

Þrátt fyrir að hafa ekki spilað alla leiki deildarinnar er hann sá markmaður sem hefur haldið oftast hreinu, alls fjögur skipti, en ásamt því er hann með hæsta vörsluhlutfallið í deildinni.

Af þeim skotum á markið sem Víkingur fær á sig ver Aron 86% þeirra, næsti markvörður þar á eftir er Anton Ari Einarsson, markvörður Breiðabliks, með rúmlega 69% vörsluhlutfall.
Sterkasta lið 10. umferðar - Gylfi veitti áritanir
TENGT EFNI

Sterkasta lið 10. umferðar - Gylfi veitti áritanir

„Mig langar til að hrósa einum manni sem fær ekkert endilega mikið umtal því það er kannski lítið að gera hjá honum. En Aron Snær í markinu hjá Víkingum kemur inn í þetta við mjög erfiðar aðstæður og hann hefur staðið sig frábærlega,“ sagði Valur Gunnarsson í Innkastinu á þriðjudag eftir sigur Víkings á KR.

Leikar enduðu 2-0 fyrir Íslandsmeisturunum og urðu þeir fyrsta liðið til að halda KR í skefjum í sumar. Fyrir leikinn höfðu Vesturbæingar að minnsta kosti skorað tvö mörk í hverjum deildarleik.

„Það má segja að hann sé mögulega í auðveldustu stöðunni í deildinni því hann er með þennan varnarmúr fyrir framan sig en það getur líka verið erfiðasta staðan fyrir markmenn. Hann þarf alltaf að vera á tánum. Mín sýn á markvarðarstöðunni hjá Víkingum er sú að þú mátt ekki klúðra leikjum - gerðu bara þitt. Svo er mikið öryggi í honum, hann á hrós skilið,“ sagði Valur jafnframt.
Sölvi ánægður með sinn mann eftir sigurinn á KR.

Sölvi ánægður með sinn mann eftir sigurinn á KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Eru ósigraðir Víkingar óstöðvandi?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.