Mikael Anderson gæti verið á förum frá Djurgarden í sumar. Hann var keyptur til sænska félagsins fyrir rúmu ári síðan frá AGF í Danmörku.
Mikael hefur verið orðaður við endurkomu til AGF en þá greinir Bold frá því að Al Qadsiah í Sádi Arabíu hafi mikinn áhuga á landsliðsmanninum.
Sænska félagið Malmö er einnig sagt hafa áhuga á Mikael en óvíst er hvort Djurgarden vilji selja hann innanlands.
Mikael segir að hlutir sem honum hafi verið lofað þegar hann gekk til liðs við Djurgården hafi ekki gengið eftir.
„Þetta eru samtöl sem hafa staðið yfir um tíma milli fólksins á bak við tjöldin og félagsins. Þegar ég kom voru ákveðnir hlutir lofaðir en það var ekki staðið við allt sem var rætt,“ sagði Mikael við Viaplay á dögunum.