Real Madrid er í stórsókn á leikmannamarkaðinum í sumar eftir tvö titlalaus tímabil.
Florentino Pérez forseti ætlar að gera allt í sínu valdi til að snúa genginu við. José Mourinho er að taka við sem þjálfari og verða varnarmennirnir Denzel Dumfries og Ibrahima Konaté kynntir á næstu dögum.
Atlético Madrid hafnaði þá 150 milljón evra tilboði í Julián Alvarez og er Real í leit að nýjum leikmönnum í hinar ýmsu stöður.
Mourinho vill fá miðvörð inn sem getur líka spilað sem vinstri bakvörður og er Real að skoða tvo gæðamikla leikmenn úr enska boltanum, þá Josko Gvardiol og Riccardo Calafiori sem leika með stórveldum Manchester City og Arsenal.
Gvardiol og Calafiori eru jafnaldrar, fæddir 2002, og með nokkur ár eftir af samningum sínum. Gvardiol á tvö ár eftir hjá City og Calafiori þrjú ár hjá Arsenal.
01.06.2026 18:00
Gvardiol um áhuga Real og Barcelona: Sjáum til hvað gerist



