Fotbolti.net
09.07.17 - 15:31
Þórarinn Jónas Ásgeirsson

Antonio Rudiger til Chelsea (Staðfest)

Rudiger er mættur á Brúnna

Rudiger er mættur á Brúnna

Canon

Mynd: Heimasíða Chelsea

Þýski varnarmaðurinn Antonio Rudiger er orðinn leikmaður Chelsea. Heimasíða félagsins tilkynnti það núna rétt í þessu að Rudiger væri genginn til liðs við félagið frá Roma á Ítalíu.
Þessi 24 ára gamli varnarmaður gerir fimm ára samning við Lundúnafélagið og mun hann leika í treyju númer 2 sem Branislav Ivanovic lék áður í.

„Þetta er frábær tilfinning því það eru ekki allir sem tækifæri til að spila fyrir jafn stórt félag og Chelsea er,\" sagði Rudiger í samtali við opinbera heimasíðu félagsins.

„Ég er spenntur fyrir því að hitta nýju liðsfélagana mína og er mjög stoltur af því að vera orðinn leikmaður Chelsea.\"

Michael Emenalo, tæknilegur ráðgjafi hjá Chelsea bætti svo við:

„Við erum ánægðir með að geta bætt við leikmanni sem hefur sannað gæði sín og eykur möguleika okkar í varnarleiknum. Antonio er ennþá ungur en hefur reynslu á hæsta stigi bæði hjá félagsliði og landsliði. Hann hefur eiginleika sem ættu að nýtast honum vel í ensku úrvalsdeildinni. Við höfum haft auga með honum í nokkurn tíma og er sannfærðir um að hann passi vel inn í hópinn.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.