Fotbolti.net
09.07.17 - 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Josh Bowler keyptur til Everton (Staðfest)

Koeman heldur áfram að versla.

Koeman heldur áfram að versla.

Canon

Mynd: Getty Images

Veskið er áfram á lofti hjá Everton. Hægt er að segja að félagið sé að missa sig á leikmannamarkaðnum, en nýjasti leikmaður liðsins er Josh Bowler sem kemur frá Queens Park Rangers.

Everton hefur verið að eltast við hinn 18 ára gamla Bowler í margar vikur, en samkomulag náðist í síðustu viku.
Hann kemur til Everton á 1,5 milljónir punda, en sú gæti hækkað í 4,25 milljónir punda seinna meir.

Bowler lék sinn eina aðalliðsleik með QPR undir lok síðasta tímabils.

Bowler þykir vera mikið efni, en hann hafnaði nýjum samningi hjá QPR í síðasta mánuði.

Everton ákvað í kjölfarið að láta vaða og félagið hefur nú landað leikmanninum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.