Fotbolti.net
09.07.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Kucka frá AC Milan til Trabzonspor (Staðfest)

Kucka er farinn frá Ítalíu.

Kucka er farinn frá Ítalíu.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur leyft miðjumanninum Juraj Kucka að fara. Kucka, sem er landsliðsmaður Slóvakíu, er farinn til Trabzonspor í Tyrklandi.

Kaupverðið er í kringum 6 milljónir evra.

Kucka byrjaði 23 leiki hjá AC Milan í Seríu A á síðasta tímabili, en liðið lenti í sjötta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.
Vincenzo Montella og hans menn í Milan hafa verið duglegir á leikmannamarkaðnum í sumar. Sjö leikmenn hafa verið keyptir síðan síðasta tímabili lauk, en leikmennirnir sem um ræðir eru Andrea Conti, Andre Silva, Hakan Calhanoglu, Mateo Musacchio, Ricardo Rodriguez, Franck Kessie og Fabio Borini.

Einhverjir leikmenn þurfa líka að fara og Kucka er einn af þeim.

Hann ákvað að skrifa undir samning við tyrkneska félagið Trabzonspor og mun spila þar næstu árin.

Trabzonspor'a hoş geldin Juraj Kucka! #WelcometoOurFamilyKuco pic.twitter.com/KadejdQl7A

— Trabzonspor Kulübü (@Trabzonspor) July 7, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.