Fotbolti.net
09.07.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sunderland fær tvo á láni frá Everton (Staðfest)

Brendan Galloway.

Brendan Galloway.

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland er að styrkja hóp sinn. Liðið hefur fengið til sín tvo leikmenn á láni frá Everton fyrir næsta tímabil.

Leikmennirnir sem um ræðir eru Brendan Galloway og Tyias Browning, en þeir eru báðir varnarmenn.
Galloway er 21 árs gamall, en hann hefur spilað 21 leik fyrir Everton síðan hann kom frá MK Dons. Hann var í láni hjá West Brom á síðustu leiktíð, en kom lítið við sögu.

Galloway var fyrsti leikmaðurinn sem Simon Grayson, nýráðinn stjóri Sunderland, bætir við hópinn hjá sér. Browning kom í kjölfarið.

Browning og Grayson þekkjast vel, en Browning spilaði seinni hluta síðasta tímabils hjá Preston, undir stjórn Grayson.

Sunderland féll úr ensku úrvalsdeildinni og liðið spilar því í Championship-deildinni á næstu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.