09.07.17 - 12:31
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Wayne Rooney til Everton (Staðfest)

Wayne Rooney við undirskriftina í dag

Mynd: Getty Images

Wayne Rooney við undirskriftina í dag

Mynd: Getty Images
Wayne Rooney hefur fært sig um set, frá Manchester United og aftur í uppeldisfélag sitt, Everton.
Rooney mætti á æfingasvæði Everton í dag og gekkst undir læknisskoðun og skrifaði undir samning við félagið.

Hinn 31 árs gamli Rooney er uppalinn hjá Everton en hann fór til Manchester United þegar hann var 18 ára.
Núna er hann mættur aftur í uppeldisklúbb sinn, 13 árum síðar.
Rooney er sjálfur mjög spenntur fyrir skiptunum. Hann skrifaði undir tveggja ára samning og tekur líklega á sig ríflega launalækkun.
„Wayne hefur sýnt að hann hefur metnaðinn og er mikill sigurvegari. Hann kann að vinna titla og ég er mjög ánægður með að hann ákvað að ganga til liðs við okkur,\" sagði Ronald Koeman, stjóri Everton.
„Hann elskar Everton og vildi ólmur koma aftur. Hann er ennþá bara 31 árs gamall og ég efast ekkert um hæfileika hans. Það er frábært að hann sé kominn.\"
Talið er að Everton muni nota Rooney sem sóknarmann, hann komi til með að leysa Romelu Lukaku af.
Lukaku er á leið í hina áttina, til Manchester United fyrir upphæð sem gæti farið í 90 milljónir punda.