Fotbolti.net
09.07.18 - 13:35
Magnús Már Einarsson

Aron framlengir um eitt ár við Cardiff (Staðfest)

Fer í úrvalsdeildina með Cardiff.

Fer í úrvalsdeildina með Cardiff.

Canon

Mynd: Getty Images

Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði Íslands, hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Cardiff en félagið staðfesti þetta í dag. Samningur Arons rann út um mánaðarmótin en nú er ljóst að hann verður með Cardiff í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili.
„Þetta hefur tekið smá tíma en þetta hefur klárlega verið biðarinnar virði. Ég hef alltaf viljað vera áfram og stjórinn (Neil Warnock) vissi það. Þó að ég hafi ekki sagt mikið um þetta í fréttunum þá vildi ég bara sinna mínu starfi á vellinum,\" sagði Aron.

Snemma á síðasta tímabili sagði Aron að hann vildi fara frá Cardiff ef liðið yrði áfram í Championship deildinni. Leikjaálagið er mikið þar og var farið að taka sinn toll hjá Aroni. Áætlanir hans breyttust þegar Cardiff komst upp í úrvalsdeildina en þar eru færri leikir á tímabili.

Hinn 29 ára gamli Aron hjálpaði Cardiff upp í úrvalsdeildina í vor en hann er á leið upp í úrvalsdeildina í annað skipti með félaginu. Aron meiddist í leik með Cardiff í apríl en náði að jafna sig í tæka tíð fyrir HM.

„Það var mikil vinna í að koma til baka til að spila fyrir þjóð mína á HM og spila með Cardiff City. Núna hefur verið númer eitt hjá mér að skrifa undir samning og ég get ekki beðið eftir að hitta strákana aftur,\" sagði Aron.

„Ég vil hrósa eigandanum og stjóranum sem hafa lagt hart að sér að ná í réttu leikmennina og tel að við höfum gert góð kaup. Þetta er allt að smella saman og leikmenn sem hafa verið hér lengi eru líka að gera nýja samninga.\"

„Litli strákurinn minn fæddist í Cardiff og ég hef gengið í gegnum margt með félaginu og stuðningsmönnum þess. Ég get ekki beðið eftir að klæðast treyjunni aftur og spila fyrir höfuðborg Wales í úrvalsdeildinni.\"


Aron hefur skorað 24 mörk í 258 leikjum með Cardiff en hann kom til félagsins frá Coventry árið 2011. Aron skoraði fyrsta markið í sögu Cardiff í ensku úrvalsdeildinni gegn Manchester City árið 2013.

Cardiff mætir Bournemouth í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar þann 11. ágúst næstkomandi.

Confirmed: @ronnimall signs new #CardiffCity deal!

👉 https://t.co/ceMn8EtgKf#CityAsOne 🔵⚽️🔵⚽️ pic.twitter.com/Xsp0RbCsxC

— Cardiff City FC (@CardiffCityFC) July 9, 2018

Aron framlengir um eitt ár við Cardiff (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.