09.07.18 - 12:00
Magnús Már Einarsson
Luis Enrique tekur við spænska landsliðinu (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Luis Enrique hefur verið ráðinn þjálfari spænska landsliðsins en þetta var staðfest nú rétt í þessu.
Fernando Hierro tók óvænt við Spánverjum rétt fyrir HM þegar Julen Lopetegui var rekinn eftir að hann hafði samið við Real Madrid.
Spánverjar töpuðu fyrir Rússum í 16-liða úrslitum á HM og í gær var tilkynnt að Hierro yrði ekki áfram með liðið.
Hinn 48 ára gamli Enrique þjálfaði Barcelona frá 2014 til 2017 en hann hefur verið í árs fríi frá fótbolta.
Enrique hefur einnig stýrt Roma og Celta Vigo á ferli sínum.

🚨 OFICIAL | @LUISENRIQUE21, nuevo seleccionador de la @SeFutbol#BienvenidoLuisEnrique pic.twitter.com/DuPcxVPyDI
— Selección Española de Fútbol (@SeFutbol) July 9, 2018