Fotbolti.net
09.07.18 - 14:03
Elvar Geir Magnússon

Wilshere til West Ham (Staðfest)

Jack Wilshere.

Jack Wilshere.

Canon

Mynd: Getty Images

Jack Wilshere er orðinn leikmaður West Ham. Miðjumaðurinn hafnaði tilboði Arsenal eftir að hafa rætt við Unai Emery, nýjan stjóra félagsins.

Wilshere er 26 ára en hann hefur verið hjá Arsenal í 17 ár. Hann gerði þriggja ára saming við West Ham.
Í æsku hélt Wilshere með West Ham og hefur birst mynd af honum sem krakki í treyju félagsins.

Wilshere segir að hluti fjölskyldu sinnar haldi með West Ham og nokkrir af vinum sínum, hann sé því mjög spenntur fyrir nýjum kafla á ferlinum.

Wilshere hittir nýja samherja sína í Sviss þar sem West Ham er í æfingaferð.

West Ham United are delighted to confirm the signing of Jack Wilshere on a three-year contract!https://t.co/ypuibbsrUM

— West Ham United (@WestHamUtd) July 9, 2018
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.