Fotbolti.net
09.07.26 - 20:02
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deild kvenna: ÍBV aftur á sigurbraut

Besta deild kvenna: ÍBV aftur á sigurbraut
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Víkingur R. 1 - 3 ÍBV
0-1 Allison Grace Lowrey ('8 )
1-1 Arna Ísold Stefánsdóttir ('24 )
1-2 Olga Sevcova ('37 )
1-3 Allison Patricia Clark ('72 )
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 3 ÍBV
Víkingur R. og ÍBV áttust við í fyrsta leik kvöldsins í Bestu deild kvenna og náðu Vestmannaeyingar forystunni snemma leiks þegar skot Allison Grace Lowrey fór af Áslaugu Dóru Sigurbjörnsdóttur og í netið.

Arna Ísold Stefánsdóttir gerði verðskuldað jöfnunarmark fyrir heimakonur á 24. mínútu með frábæru skoti við vítateigshornið sem endaði undir samskeytunum.

Olga Sevcova endurheimti forystu Eyjakvenna eftir góða stoðsendingu frá Allison Lowrey og fengu Víkingar tækifæri til að jafna fyrir leikhlé sem nýttist ekki, svo staðan var 1-2 þegar gengið var til búningsklefa.

Í síðari hálfleik fengu bæði lið góð færi til að skora áður en Allison Patricia Clark tvöfaldaði forystu gestanna á 72. mínútu.

Víkingskonur fengu færi til að minnka muninn en nýttu þau illa svo lokatölur urðu 1-3.

ÍBV er komið aftur á sigurbraut eftir fimm leiki án sigurs. Liðið er með 17 stig og deilir þriðja sætinu með Stjörnunni, en Stjörnukonur eiga leik til góða.

Víkingur er með 10 stig eftir 10 umferðir.
Besta deild kvenna: ÍBV aftur á sigurbraut
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deild kvenna: ÍBV aftur á sigurbraut
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.