Fotbolti.net
26.08.26 - 22:43
Brynjar Ingi Erluson

„Þetta verður að vera tímabilið mitt“

„Þetta verður að vera tímabilið mitt“
Canon

Mynd: EPA

Franski framherjinn Thierno Barry skoraði sína fyrstu þrennu fyrir Everton þegar liðið vann Preston, 4-0, í enska deildabikarnum í kvöld.
Enski deildabikarinn: Barry með sína fyrstu þrennu fyrir Everton
TENGT EFNI

Enski deildabikarinn: Barry með sína fyrstu þrennu fyrir Everton

Barry kom til Everton frá Villarreal á síðasta ári en fékk ekki þá draumabyrjun sem hann hafði vonast eftir og þurfti að bíða fram í desember eftir fyrsta markinu. Eftir það fór boltinn að rúlla hjá Frakkanum sem lauk tímabilinu með átta mörk í öllum keppnum.

Hann fer mun betur af stað á þessari leiktíð, en Barry skoraði í 2-0 sigrinum á Crystal Palace í opnunarumferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina og fylgdi því síðan eftir með þrennu í kvöld.

„Þetta verður að vera tímabilið mitt. Ég lagði hart að mér í sumar til að láta það verða að veruleika og er ótrúlega ánægður með að hafa skorað mína fyrstu þrennu fyrir Everton. Ég hef unnið gríðarlega mikið fyrir þessu og liðsfélagarnir hjálpuðu mér auðvitað mikið,“ sagði Barry.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.