Fotbolti.net
26.08.26 - 18:57
Brynjar Ingi Erluson

Aston Villa og Chelsea ná saman um Jackson

Aston Villa og Chelsea ná saman um Jackson
Canon

Mynd: EPA

Aston Villa og Chelsea hafa náð saman um senegalska framherjann Nicolas Jackson. David Ornstein segir frá þessu í kvöld.
Jackson hefur lengi verið á óskalista Unai Emery hjá Villa og nú eru félagaskiptin að verða að veruleika.

Félögin hafa náð samkomulagi um kaupverð en Chelsea fær 47,5 milljónir punda fyrir Jackson. Aðrar 17,5 milljónir geta bæst við í árangurstengdar greiðslur.

Þetta er í þriðja sinn í sumar sem félögin eiga viðskipti sín á milli. Chelsea keypti Morgan Rogers frá Villa fyrir 117 milljónir punda í síðasta mánuði og Alejandro Garnacho fór í hina áttina fyrir 40 milljónir.

Jackson mun því spila aftur undir stjórn Emery en þeir unnu áður saman hjá Villarreal. Senegalinn gekk til liðs við Chelsea árið 2023 og hefur skorað 30 mörk í 81 leik fyrir félagið. Hann lék á láni hjá Bayern München á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 11 mörk í 34 leikjum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.