26.08.26 - 23:24
Brynjar Ingi Erluson
Bellingham sýndi ótrúlega fótboltakunnáttu sína

Jobe þekkir boltann!

Mynd: EPA

Jobe þekkir boltann!

Mynd: EPA
Jobe Bellingham, leikmaður Borussia Dortmund og yngri bróðir Jude Bellingham hjá Real Madrid, er með sannkallaðan límheila. Dortmund birti myndband þar sem hann þylur upp alla sigurvegara Meistaradeildar Evrópu og forvera hennar, Evrópukeppni meistaraliða, ár fyrir ár.
Bellingham var beðinn um að nefna alla sigurvegara keppninnar frá 2026 og aftur til upphafs hennar.
Hann var með þetta allt á hreinu og nefndi alla sigurvegarana í réttri röð. Bellingham ruglaðist aðeins á einu ártali en var fljótur að leiðrétta sig.
Jobe, sem er tvítugur, þarf ekki að leita langt yfir skammt að áhuganum á spurningakeppnum, því afi hans tók þátt í spurningaþættinum Mastermind á BBC árið 1987. Þar svaraði hann fimmtán af sautján spurningum rétt um sögu Nígeríu.
Það skemmtilega við þetta er að Íslendingurinn Magnús Magnússon stýrði þættinum en hann gegndi því hlutverki í 25 ár.
Hér fyrir neðan má sjá Jobe þylja upp alla sigurvegarana auk myndbands af afa hans í Mastermind.
Sjáðu afa Bellingham-bræðra í Mastermind

This is absolutely INSANE from Jobe Bellingham. ???????? pic.twitter.com/OLc7xuhOeD
— Bolarinwa Olajide (@iambolar) August 26, 2026