26.08.26 - 18:46
Brynjar Ingi Erluson
Nico Gonzalez til Newcastle (Staðfest)

Mynd: Newcastle United

Mynd: Newcastle United
Spænski miðjumaðurinn Nico Gonzalez er genginn til liðs við Newcastle United frá Manchester City.
Gonzalez er 24 ára varnarsinnaður miðjumaður sem kom til Man City frá Porto fyrir 50 milljónir punda í byrjun síðasta árs.
Hann náði ekki að festa sig í sessi hjá City og hefur félagið nú samþykkt að selja hann til Newcastle. David Ornstein segir kaupverðið nema 48 milljónum punda en fjórar milljónir til viðbótar geti bæst við í árangurstengdar greiðslur.
Newcastle staðfesti komu hans á samfélagsmiðlum í dag en hann skrifaði undir langtímasamning við félagið.
Gonzalez er sjöundi leikmaðurinn sem Newcastle fær í sumar á eftir Bazoumana Toure, Amar Dedic, Aladji Bamba, Lukas Hornicek, Sean Steur og Ewen Jaouen.

We are delighted to announce the signing of Spanish midfielder Nico González on a long-term deal ???? pic.twitter.com/IQMVtnZT7H
— Newcastle United (@NUFC) August 26, 2026