Fotbolti.net
26.08.26 - 20:42
Andri Stefánsson

Jeffs: Vissi ekki að munurinn yrði svona mikill

Auglýsing
Jeffs var ánægður eftir leik.

Jeffs var ánægður eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Breiðablik völtuðu yfir FK Csikszereda í Evrópubikarnum í kvöld. Leikar enduðu með 8-1 sigri Breiðabliks og fótbolti.net ræddi við Ian Jeffs, þjálfara Breiðabliks, eftir leik.
Lestu um leikinn: Breiðablik 8 - 1 Csikszereda
„Ég er mjög ánægður með liðið og hvernig það lagði sig fram í dag. Þetta var góður og vandaður leikur af okkar hálfu. Við skoruðum átta mörk og fengum tækifæri til að skora fleiri. Ég er virkilega ánægður með sigurinn,“ sagði Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, eftir stórsigurinn.

Varstu að búast við svona stórum sigri?

„Nei, ekki alveg svona. Ég reyndi að undirbúa leikmennina fyrir það að þetta væri Evrópuleikur og maður veit aldrei hvað gerist. Það er erfitt að leikgreina andstæðinginn og meta styrkleika rúmensku deildarinnar. Ég hélt að við yrðum meira með boltann og myndum stýra leiknum en vissi ekki að munurinn á liðunum yrði svona mikill.“

Hvað var best við leik ykkar í dag?

„Hugarfarið. Við hættum ekki eftir góðu byrjunina. Við skoruðum tvö mörk snemma en leikmennirnir héldu áfram, misstu ekki einbeitinguna og héldu sig við leikplanið. Þær framkvæmdu það mjög vel og ég er ánægður með nánast allt í kvöld.“

Hefðirðu viljað skora fleiri mörk?

„Já, við fengum færi til þess. Við komumst fjórum, fimm eða sex sinnum einar gegn markverðinum og fengum góð færi í báðum hálfleikjum sem við nýttum ekki. Það voru tækifæri til að skora fleiri mörk en þetta var frábær sigur og ég get ekki kvartað.“

Hrafnhildur Ása hefur verið frábær fyrir ykkur í sumar en byrjaði á bekknum í dag. Hver var hugmyndin á bak við það?

„Þetta var svipað og við gerðum í Evrópukeppninni áður. Agla María sat á bekknum í leiknum gegn Minsk og ég gerði það sama við Hrafnhildi Ásu í dag. Hún hefur spilað nánast 90 mínútur í öllum leikjum í sumar og ég beið eftir tækifæri til að hvíla hana. Það er stutt í næsta leik og það sama á við um Þórdísi Elvu. Ég vildi hvíla þær í dag. Þegar staðan er orðin 8-0 viltu helst geta hvílt leikmenn en því miður mátti ég bara gera fimm skiptingar.“

Þið eruð 8-1 yfir samanlagt. Stefnirðu á að spila svona vel í síðari leiknum?

„Ef ég á að vera hreinskilinn er ég ekki farinn að hugsa út í það. Við erum búin með fyrri hluta viðureignarinnar en næsti fókus er á deildina, þar sem er hörð keppni. Við förum strax að undirbúa okkur fyrir leikinn á laugardag.“
Hrafnhildur Ása byrjaði á bekknum en kom inn á í hálfleik og skoraði.

Hrafnhildur Ása byrjaði á bekknum en kom inn á í hálfleik og skoraði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.